Innanskóla Gettu Betur - DAGSKRA

04. mars 2010

Jæja, þá er komið að því! (klikkið á Innanskola Gettu Betur til þess að sjá frett.

Kosningar

01. mars 2010

Formaður framboðs er ábyrgur fyrir framboði síns hóps.

Skila þarf undirskriftarlista fyrir hvert framboð, með 25 undirskriftum meðlima SMS í 1.-3. Bekk þar sem koma skal fram fullt nafn, bekkur og kennitala þess sem skrifar undir. Á undirskriftarlistanum skal líka vera fullt nafn, bekkur, símanúmer og kennitala hjá frambjóðanda/formanni framboðs.

Skil á lista er fimmtudaginn 4. mars á kosningafund sem haldinn verður í fundargatinu þann dag.

 

Taka skal fram að sá sem ætlar að bjóða sig fram þarf að vera skráður í SMS.

Kosið verður til:

Ármanns

Ritara

Gjaldkera

Listafélags

Skemmtinefndar

Ritnefndar

Íþróttaráðs

Thalíu

Málfundafélags

Markaðsráðs

 

Við hvetjum alla til að nýta sér kosningaréttinn og kjósa það sem þeir telja að sé SMS til hagbóta.

 

Kveðja, stjórn SMS.

Andri Guðmunds kominn á fast

23. feb 2010

Andri Guðmunds

Kæru MS-ingar, okkar ástkæri Andri Guðmunds er farinn af markaðnum og er kominn á fast með ungri dömu sem ber nafnið Karen Ragnarsdóttir.

Þetta eru mikil gleðitíðindi en einnig sorgartíðindi í senn. Möguleikarnir á markaðnum hjá kvennþjóðinni hafa hafa hlotið mikinn skaða við þennan atburð. Stjórn SMS óskar honum hinsvegar velfarnaðar í nýju sambandi.

 

Kveðja, Stjórn SMS.